Monday, March 5, 2012

Fréttir af Emil Tuma í Danmörk

Fréttir af Emil Tuma í Danmörk4.mars 2012  |  Víglundur Laxdal
 
Sæl öll og takk fyrir skemmtilegt samhjól í dag.

Mig langar að segja ykkur smá fréttir og stöðu á mínum manni í danaveldi. 

Emil Tumi eða “ Túmi” eins og danirnir kalla hann er í góðum gír í skólanum í Vejle og er þar að undirbúa sig fyrir átök sumarsins. Emil er búinn að vera slást við smávægileg meiðsli en er búinn að jafna sig á þeim.

Við tókum þá ákvörðun í vetur að skipta um klúbb og teljum það vera gæfuspor, nú hjólar hann fyrir VejenBC , en þar er mjög gott unglingastarf og góð samvinna við lið fyrir eldri unglinga (U19)  sem heitir Team CHJ Group-Comentor og er Emil kominn í hóp hjá þeim sem kallasr U17 Talent ( efnilegir) sem er undanfari þess að komast í þetta lið. Það vera valinn í þann hóp gerir það að verkum að þú færð að fara í æfinga og keppnisferðir með liðinu og taka þátt í þeirra undirbúning. 
Þetta er stekur klúbbur og voru meðal annars að kynna nýja þjálfar í dag , Peter Meinert Nielsen, sem meðal annars hjólaði  Tour De France fimm sinnum og var í fyrsta sigurliði Armstrong. 

Emil er á leið til Nice í Frakklandi í lok vikunnar til æfinga og mun vera í Nice þegar Paris – Nice líkur um næstu helgi. Emil mun æfa með skólanum fyrstu 4 daganna en verður svo eftir þar og æfir með sínum klúbb í viku í viðbót. 

Í sumar stefnum við svo á að hann hjóli í Danmörku enda mikilvægt ár framundan til að sýna sig en við erum að vinna í því að reyna fjármagna það að hafa hann þar og ef það tekst mun hann verða þar í það minnsta fram á haustið..

Einnig langaði mig að minnast á það að Emil var útnefndur sem styrkþegi í  Styrktarsjóði ungra og framúrskarandi efnilegra íþróttamanna hjá ÍSÍ  fyrir árið 2012. 

Fyrsta keppni sumarsins er svo í Þýskalandi 24 og 25 marts og ætla ég að reyna að  vera viðstaddur þá keppni. 


Kveðja 
Víglundur 

http://vejenbc.dk/boern-unge
http://www.teamchjgroup-comentor.dk/
http://www.cyclingarchives.com/coureurfiche.php?coureurid=5865


Monday, September 12, 2011

Annað stig og annar 50 kall

Þá var komið að þriðju keppninni í Danaveldi. Sú kepnni fór fram í Hendensted rétt norðan við Vejle, Emil og nokkrir félagar úr skólunum hjóluðu á staðinn og tók þótt. Keppninn var 64 km hópstrat og aftur voru rétt rúmlega 80 keppendur skráðir til leiks þannig að 25 sæti vori í boði em gáfu stig.

Emil fór í keppnina með væntingum að enda ofarlega en í fyrsta hring varð slys fyrir framan hann og hann keyrði yfir viðkomandi og  svo 3 sem keyrðu á hann. Við þetta fór keðjan af hjá honum og afturgjörðin skekktist.
Emil náði að tjasla þessu saman og hjóla áfram og þegar hann var að ljúka fyrsta hring og enn að hugsa hvort hann ætti að hjóla þetta einn hitti hann á annan sterkan strák sem hafði sprengt og ákváðu þeir að taka sénsinn og ná hópnum.
Þetta var góð ákvörðum því þeir hjólðu einir í 24 km og náðu pelatoninu á endanu í síðasta hring, Emil segir þetta erfiðasta sprett sem han hefur tekið enda ekki auðvelt að hjóla tveir uppi stóran hóp sem hjólaði á 40 km hraða.

Eftir að þeir náðu hópnum náðu þeir að detta inn í miðjan hóp og hjóla með þeim síðasta hringinn en þegar kom að enda spretti fór Emil ásamt nokkrum öðrum í " udbrud" en hann átti ekki nóga orku eftir til að klára það og í endasprettinum dróst hann aðeins til baka og endaði númer 22, þó ekki nema 2 sek á eftir fyrsta manni.

Glæsilegur árnagur engu að síður að ná að bjarga stigi með því að hjóla hópinn uppi og klára , drengurinn sem vann þessa vinnu með honum var aðeins óheppnari og var hjólaður niður í endaspretti og slasaðist lítillega.

Uppskeran 3 keppnir 2 stig.

Á morgun Þriðjudag mun danskur hjólreiðamður úr Team Saxobank og fyrrum Tour keppnandi halda fyrirlestur fyrir strákanna og gera á þeir Power test og vikuna þar á eftir fara þeir allir ásamt þjálfara í æfingarbúðir til Kaupmannahafnar þar sem einning verður fylgst með Heimsmeistarpkepnninni sem fer fram á götum borgarinnar.

Saturday, September 3, 2011

Fyrsta stig og fyrsta verðlaunafé í hús

Í dag tók Emil þátt í sinni annari keppni í Danaveldi, keppnin var haldinn í Grenaa á Norður-Jótlandi.
Í flokki U 17 ( drengir fæddir 95 og 96) voru 80 þátttakendur skráðir til leiks , brautin var 32 km og hjólaðir tveir hringir eða 64 km , brautin var flöt með einni brekku.

Emil gekk mjög vel og hjólaði í fremsta hóp allan tímann og kom sá hópur saman í mark og aðeins sjónarmunur á milli manna og endaði Emil í 12 sæti á sama tíma og sigurvegarinn.

Þetta er stór áfangi og fyrsta stig í hús , en í DK safnar maður stigum allt tímabilið og gefa fyrstu 3 sætin 4,3 og 2 stig en svo næstu sæti þar á eftir 1 stig en það er mismunandi eftir fjölda þátttakanda hvað mörg sæti gefa stig.

Margir keppanda í DK er búnir að hjóla allt tímabilið og hafa ekki enn náð stigi en Emil náði sínu fyrsta stigi í sinni annari keppni og ekki annað en hægt að vera stoltur af því.

Þar að auki var verðlaunafé í boði og fékk hann heilar 50 danskar krónur í vasann fyrir þennan árangur.

Frábær dagur þar sem reynslan frá Tyrklandi vó þungt í að koma sér framar í feltið og ná stigi.

Kepnnin var hröð þrátt fyrir að tíminn sé ekki góður , því í upphafi keppni gerðist sá óvænti atburður að hestur ákvað að taka þátt og kom sé fyrir í fremsta hóp fyrir framan Emil og hægði það töluvert á hópnum á meðan hann var með.

U17 - 64 km.
1. DEN19960508 Patrick Leth (Odder CK) 01.43,41.
2. DEN19950505 Mathias Nørgård Villadsen (Nr. Søby CK) s.t.
3. DEN19950612 Frederik Maillund Lassen (Horsens AC) s.t.
4. DEN19950222 Henrik Pedersen (Nr. Søby CK) s.t.
5. DEN19960701 Nicolai Just Pedersen (Cykling Odense) s.t.
6. DEN19950519 Thomas Edemann Jensen (Grenaa CC) s.t.
7. DEN19950507 Nikolaj Fevre (Kolding BC) s.t.
8. DEN19651111 Mathias Bregnhøj (Vejle CK) s.t.
9. DEN19960207 Jesper Bundgaard Vinkel (Holstebro CC) s.t.
10. DEN19970322 Niklas Larsen (Slagelse CR) s.t.
11. DEN19970121 Mikkel Honorè (Middelfart CC) s.t.
12. ISL19960919 Emil Tumi Viglundsson (Vejle CK) s.t.
13. DEN19970505 Mathias Norsgaard Jørgensen (Silkeborg IF Cykling) s.t.
14. DEN19950713 Simon Nybo Holgersen (Varde CK) s.t.
15. DEN19961011 Kasper Mølgaard Andersen (Varde CK) s.t.
16. DEN19951121 Jonas Koller Nielsen (Esbjerg CR) s.t.
17. DEN19950104 Nicolaj Moltke Steen (Horsens AC) s.t.
18. DEN19951011 Andreas Holm Gylling (CK Aarhus) s.t.
19. DEN19950208 Kasper Asgreen (Kolding BC) s.t.
20. DEN19950619 Mikkel Skjellerup (Aalborg CR) s.t.
21. DEN19960914 Lasse Rangstrup Nielsen (Varde CK) s.t.
22. DEN19951029 Jonas Nørskov (Grenaa CC) s.t.
23. DEN19950729 Rasmus Oliver Mogensen (CK Aarhus) s.t.
24. DEN19961025 Silas Zacharias Clemmensen (Aalborg CR) s.t.
25. DEN19950207 Niclas Møller Kjærhus Sørensen (Horsens AC) s.t.

Sunday, August 21, 2011

Fyrsta vikan / keppnin í Danmörku

Jæja þá er fyrsta vikan í nýjum skóla liðinn , Emil gengur vel , það er stíft prógram í skólanum frá 7 á morgnanna til 8 á kvöldin þar sem meðal annars er æft 2 sinnum á dag.
Emil er kominn á fljúgandi skrið í dönsku og á orðið mikið að félögum og líkar mjög vel.

Emil er genginn í Vejle Cykle klub ( www.vck.dk) og er þá orðinn löglegur í dönskum keppnum.
Hann tók þátt í sinni fyrstu keppni á laugardaginn og var það eins og allt annað sem gerist þessa daganna
" en stor oplivelse ".

Honum brá svolítið þegar enginn annar en Bjarne Riis var mættur á marklínuna með syni sína og litlu mátti muna seinna um daginn að Bjarne keyrði hann niður í stóra Audi bílnum sínum.

Emil tók þátt í sínum flokki U17 en það eru jafnaldrar hans og ári eldri en í þeim flokki voru 80 þátttakendur.

Guldhammer hafði gert keppnisplan þar sem hann vildi að Emil myndi ná að fylgja fremsta hóp og stinga af niður brekku í síðasta hring en það gekk ekki eftir því Emil lenti í að festast inni á milli manna á leið upp bratta brekku og þar sprakk hjá einum þeirra og á nokkrum sekúndum var hann dottinn úr fremsta hóp og náði honum aldrei aftur.
Emil sagði þessa keppni mjög harða og menn látið finna mikið fyrir sér og fannst honum  mjög lærdómsríkt að taka þátt.

Næstu helgi mun hann ekki keppa því þá fer DM fram í Kaupmannahöfn og hann má ekki keppa þar, þar sem hann er Íslendingur.

Myndir úr keppninnn á laugardaginn http://mbaek.dk/main.php?g2_itemId=98028&g2_page=2

Hilsen  Farman






Kominn í Skóla í Danmörku

Jæja þá er stóri draumurinn orðinn að veruleika.
Eftir glæsilegan árangur í Tyrklandi tók Emil Tumi þeirri áskorun að fara í skóla í Danaveldi.
Hann mun gana í 10 bekk ( 9 klasse) í http://www.vejleidraetsefterskole.dk/  og æfa undir handleiðslu Thomas Guldhammer sem er atvinnumaður í hjólreiðum.

Thursday, July 28, 2011

Annað markmið dagsins

Hingað til hefur verið bannað hjá okkur feðgum að borða fyrir utan Ólympíuþorpið og
til að fanga árangri dagsins ætlum við einhvar staðar niður í svartasta Trabzon og borða ekta
Tyrknest Kebab ( ósk frá drengnum áður en hjólað var í dag)